Lausar stöður á öldrunardeild LSH

Lausar stöður á öldrunardeild LSH

Ágætu almennu læknar,

Tvær stöður deildarlækna við öldrunarlækningadeild Landspítala eru lausar til umsóknar frá og með 1.apríl 2011 eða síðar eftir samkomulagi.

Um er að ræða fjölbreytt starf á hinum ýmsu öldrunarlæknadeildum. Stöðurnar eru námsstöður og ef um ráðningu í eitt ár er að ræða verða þær skipulagðar þannig að þær gefi heildstæða reynslu á öllum sviðum öldrunarlækninga. við greininu, meðferð og endurhæfingu, á heilabilunardeild, á bráðaöldrunarlækningadeildum, við ráðgjöf, á dagspítala, á göngudeild (og á hjúkrunarheimilum ef óskað er).

Starfsvettvangur er á Landakoti, og í Fossvogi. Vaktir eru við Landakot, teknar að heiman. Stöðurnar eru kjörnar til sérnáms í öldrunarlækningum, heimilislækningum, lyflækningum og fleiri greinum. Möguleiki er á skemmri ráðningu en einu ári og einnig er möguleiki á 80% starfi.

Öflugt kennsluprógram er á deildinni með mánudagsfundum deildarlækna, yfirferð yfir öldrunarlækningum með sérfræðingum deildarinnar vikulega, greinafundum á föstudögum, auk þverfaglegra funda á fimmtudögum. Einnig standa aðrir fundir LSH opnir þeim sem eru í námsstöðum, svo sem þriðjudags/fimmtudagsfundir lyflækningadeilda.

Frekari upplýsingar veitir Pálmi V. Jónsson, yfirlæknir öldrunarlækninga í síma 543-9891, netfang: palmivj@landspitali.is og skulu umsóknir sendar til hans er lýsa menntun og fyrri störfum. Einnig gefur Sigríður Helgadóttir umsjónadeildarlæknir upplýsingar í síma 6959744, netfang sigrihe@landspitali.is "

Fyrirvari / Disclaimer
http://www.landspitali.is/disclaimer