
Deildarlæknar - Landspítali, lyflækningasvið
Deildarlæknar - Landspítali, lyflækningasvið
Störf deildarlækna á lyflækningadeildum Landspítala eru laus til umsóknar. Starfshlutfall er 100% og veitast störfin frá 1. janúar 2012 eða eftir samkomulagi. Um er að ræða námsstöður, til allt að 3 ára, ætlaðar þeim sem hyggja á frekara sérfræðinám í lyflækningum eða skyldum greinum. Fjölbreytt tækifæri gefast til rannsóknarstarfa í samvinnu við sérfræðilækna.
Helstu verkefni og ábyrgð
Deildarlæknar hljóta þjálfun í almennum lyflækningum með störfum á öllum sérdeildum lyflækningasviðs LSH ásamt bráðamóttökum og göngudeildum spítalans
Hæfnikröfur
» Almennt lækningaleyfi
» Íslenskukunnátta
» Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Viðtöl eru liður í ráðningarferlinu. Umsókn skulu fylgja náms- og starfsferilskrá (curriculum vitae) og tvö meðmælabréf.
Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Má Kristjánssyni, yfirlækni og framhaldsmenntunarstjóra lyflækningasviðs, Smitsjúkdómalækningar E-7 Fossvogi.
Sótt er um starf rafrænt á heimasíðu Landspítala, http://www.landspitali.is/, undir "laus störf". Ef ekki eru tök á að sækja um rafrænt má nálgast umsóknareyðublöð í upplýsingum Fossvogi og Hringbraut og hjá mannauðssviði, Eiríksgötu 5. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf á Landspítala. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Landspítali er reyklaus vinnustaður.
ATH. Fylla þarf út lágmarksupplýsingar í almenna umsókn og setja viðhengi, en ýtarlegri upplýsingar í umsókn fyrir læknisstöðu, sjá slóð hér fyrir neðan.
Umsókn um læknisstöðu - umsóknareyðublað heilbrigðisráðuneytisins
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.11.2011
Nánari upplýsingar veitir
Már Kristjánsson - markrist@landspitali.is -824 5607
Ragnar Pálsson - ragnarp@landspitali.is -824 5624


