
Auglýsing - Deildarlæknir í öldrunarlækningum
Auglýsing - Deildarlæknir í öldrunarlækningum
Laust er til umsóknar starf deildarlæknis í öldrunarlækningum. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. september 2011 eða eftir samkomulagi.
Um er að ræða námsstöðu sem veitist til eins árs en möguleiki er á skemmri ráðningu.
Starfið er kjörin til sérnáms í öldrunarlækningum, heimilislækningum, lyflækningum og fleiri greinum. Starfsvettvangur er á Landakoti og í Fossvogi. Vaktir eru á Landakoti. Einnig getur staðan verið góð endurmenntunarstaða fyrir starfandi heimilislækna.
Helstu verkefni og ábyrgð
Deildarlæknir hlýtur þjálfun og reynslu á öllum sviðum öldrunarlækninga, við greiningu og meðferð á hinum ýmsu öldrunarlækningadeildum, svo sem bráðaöldrunarlækningadeild, öldrunarlækningadeildum með áherslu á endurhæfingu, auk dagdeildar, göngudeildar og starfi á hjúkrunarheimilum.
Hæfnikröfur
» Almennt lækningaleyfi
» Íslenskukunnátta
» Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá.
Umsóknargögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Pálma V. Jónssyni, yfirlækni, K-4 öldrunarlækningar Landakoti.
Sótt er um starf rafrænt með því að smella á "sækja um starf" á heimasíðu www.landspitali.is. Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöð í upplýsingum Fossvogi og Hringbraut og hjá mannauðssviði, Eiríksgötu 5. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf á Landspítala. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Landspítali er reyklaus vinnustaður.
ATH. Fylla þarf út lágmarksupplýsingar á almenna umsókn og setja viðhengi, en ýtarlegri upplýsingar í umsókn fyrir læknisstöðu, sjá slóð hér fyrir neðan.
Umsókn um læknisstöðu - umsóknareyðublað heilbrigðisráðuneytisins
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 23.07.2011
Nánari upplýsingar veitir
Pálmi V Jónsson - palmivj@landspitali.is - 543-9891


