Auglýsing - Deildarlæknar – Lyflækningasvið

Auglýsing - Deildarlæknar – Lyflækningasvið

Störf deildarlækna á lyflækningadeildum Landspítala eru laus til umsóknar. Starfshlutfall er 100% og veitast störfin frá 1. ágúst 2011 eða eftir samkomulagi. Um er að ræða námsstöður til allt að 3 ára ætlaðar þeim sem hyggja á frekara sérfræðinám í lyflækningum eða skyldum greinum. Fjölbreytt tækifæri gefast til rannsóknarstarfa í samvinnu við sérfræðilækna.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Deildarlæknar hljóta þjálfun í almennum lyflækningum með störfum á öllum sérdeildum
lyflækningasviðs LSH ásamt bráðamóttökum og göngudeildum spítalans

Hæfnikröfur
» Almennt lækningaleyfi
» Íslenskukunnátta
» Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Viðtöl eru liður í ráðningarferlinu. Umsókn skulu fylgja náms- og starfsferilskrá (curriculum vitae) og tvö meðmælabréf.

Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Steini Jónssyni, framhaldsmenntunarstjóra lyflækningasviðs E-7 Fossvogi.

Upplýsingar veita Steinn Jónsson, framhaldsmenntunarstjóri lyflækningasviðs, steinnj@landspitali.is, sími 543 6249 og umsjónardeildarlæknarnir Ingibjörg Kristjánsdóttir, ingibk@landspitali.is, sími 825 3574 og Ragnar Pálsson, ragnarp@landspitali.is, sími 824 5624.

Sótt er um starf rafrænt á heimasíðu Landspítala, www.landspitali.is, undir "laus störf". Ef ekki eru tök á að sækja um rafrænt má nálgast umsóknareyðublöð í upplýsingum Fossvogi og Hringbraut og hjá mannauðssviði, Eiríksgötu 5. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf á Landspítala. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Landspítali er reyklaus vinnustaður.

ATH. Fylla þarf út lágmarksupplýsingar í almenna umsókn og setja viðhengi, en ýtarlegri upplýsingar í umsókn fyrir læknisstöðu, sjá slóð hér fyrir neðan.

Umsókn um læknisstöðu - umsóknareyðublað heilbrigðisráðuneytisins

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.06.2011

Nánari upplýsingar veitir
Steinn Jónsson - steinnj@landspitali.is - 543 6249
Ingibjörg Kristjánsdóttir - ingibk@landspitali.is - 825 3574

LSH Aðstoðarlæknar lyflækninga
Fossvogi – 108 Reykjavík