
Upplýsingar um framhaldsnám
Upplýsingar um framhaldsnám
Hér í þessu safni er hugmyndin að safna saman minnispunktum, ráðleggingum og almennum upplýsingum fyrir þau lönd sem unglæknar eru helst að sækja sérnám til. Þetta eru t.d. upplýsingar um tekjur, skatta, almannatryggingar - almenn atriði sem hver læknir þarf að huga að áður en land er valið og flutt út. Búið er að vinna frumtexta fyrir Svíþjóð en hér með er óskað eftir sams konar textum fyrir hin löndin! Þá er það ósk FAL að allir unglæknar taki þátt með því að bæta við upplýsingum en það er auðvelt með athugasemdakerfinu, fólk getur þar einnig lagt inn fyrirspurnir sem aðrir svara. Upplýsingatextarnir verða svo uppfærðir jafnóðum með upplýsingum sem bætast við. Hér verður safnað saman texta sem gildir almennt fyrir öll löndin til að sameiginleg atriði séu ekki margendurtekin í textasíðum landanna. Samskip og Eimskip taka að sér búslóðaflutninga og útvega fyrirtæki sem flytja gáminn á áfangastað. Þau eiga einnig að geta veitt upplýsingar um tollafgreiðslu á gámnum (yfirleitt ekkert mál) og í raun hægt að taka hvað sem er með sér. Íslensku tryggingafélögin selja tryggingar á búslóðinni (hafa samband við eigið tryggingafélag á Íslandi áður en flutt er). Sjá einnig:
Sérnám erlendis
Almenn atriði fyrir öll lönd
Búslóðaflutningur
Stundum hefur tekist að semja við atvinnuveitenda um greiðslu fyrir búslóðaflutning.

