Lög félags ungra lækna

Lög félags ungra lækna

I. Kafli: Heiti félagsins, lögheimili, eðli og tilgangur

1. grein
Heiti félagsins, lögheimili og varnarþing.
Félagið heitir Félag ungra lækna, skammstafað F.U.L.  Heiti félagsins á ensku er The Icelandic association of junior doctors. Lögheimili þess og varnarþing er í Kópavogi.

2. grein
Eðli félagsins.
Félag ungra lækna er sjálfstætt aðildarfélag Læknafélags Íslands með réttarstöðu svæðafélags.

3. grein
Tilgangur og markmið.
Tilgangur félagsins er:
1. Að gæta hagsmuna félagsmanna, m.a. með því að koma fram fyrir þeirra hönd við gerð kjarasamninga við íslenska ríkið og aðra atvinnurekendur í samræmi við 17.gr Laga Læknafélags Íslands. Samningsréttur F.U.L. verður ekki framseljanlegur til stærri samninganefnda.
2. Að tryggja félagsmönnum almenn réttindi hvað varðar vinnuálag og frístundir.

3. Að auka þekkingu og meðvitund lækna varðandi réttinda- og kjaramál þeirra
4. Að efla áhuga og þátttöku lækna á öllu er lýtur að framþróun í heilbrigðismálum
5. Að auka samvinnu, kynni og stéttarþroska íslenskra lækna.
6. Að stuðla að bættri þjálfun lækna og aukinni grunn- og símenntun allra lækna.
7. Að bæta heilsufar landsmanna og efla sjálfsvitund þeirra um ræktun eigin líkama og sálar.

II. Kafli: Félagsaðild, innganga

4. grein
Félagsmenn.
Félagsmenn geta þeir orðið sem lokið hafa kandidatsprófi frá Læknadeild Háskóla Íslands og eru búsettir og/eða starfa sem læknar á Íslandi, svo og íslenskir eða erlendir ríkisborgarar, sem tekið hafa kandídatspróf erlendis, en fá læknaréttindi á Íslandi. Læknanemar sem lokið hafa 4. ári í læknisfræði fá aukaaðild að Félagi Ungra Lækna en hafa ekki atkvæðisrétt á fundum.

5. grein
Úrsögn.
Úrsögn skal vera skrifleg og send stjórn félagsins með minnst 1 mánaðar fyrirvara. Ef F.U.L. á í deilu við ríki, sveitarfélög eða aðra vinnuveitendur, getur enginn félagi leyst sig undan þeim skyldum, sem félagið leggur þeim á herðar.

6. grein
Heiðursfélagar.
Félagið getur kosið heiðursfélaga, lækni, vísindamann eða velunnara félagsins. Val hans skal fara fram á löglegum aðalfundi og þarf samþykki a.m.k. 3/4 fulltrúa fundarins.

III. Kafli: Fjármál

7. grein
Félagsgjöld
Til félagsins rennur hluti af árgjaldi félaga til Læknafélags Íslands og er því ætlað að standa straum af rekstri félagsins. Kandidatar greiða fjórðung úr árgjaldi, eftir það greiða menn hálft árgjald í 2 ár, þar á eftir fullt árgjald. Aðalfundur getur þó ákveðið að félagsmenn greiði til viðbótar sérstakt árgjald til F.U.L. sem rennur í félagssjóð. Slíkt árgjald skal greitt fyrir lok hvers árs. Heiðursfélagar skulu undanþegnir félagsgjöldum.

8. grein
Fjárhagsáætlun.
Stjórn félagsins skal undir stjórn gjaldkera gera fjárhagsáætlun fyrir hvert ár og leggja fyrir aðalfund. Rekstur félagsins og ráðstöfun fjárs skal vera innan ramma þess sem árleg fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir.

9. grein
Reikningsár.
Reikningsár félagsins skal miðast við aðalfundi.

IV. Kafli: Aðalfundur, aukaaðalfundur og félagsfundir

10. grein
Aðalfundur.
Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfund skal boða ár hvert á tímabilinu ágúst-desember. Aðalfund skal boða með a.m.k. 2 vikna fyrirvara. Aðalfundur er lögmætur sé löglega til hans boðað. Tillögur til lagabreytinga, ályktana eða stjórnarkjörs skulu sendar stjórn félagsins a.m.k. 10 dögum fyrir fundinn. Stjórn F.U.L. skal birta eftirtalin gögn minnst 1 viku fyrir aðalfund:
1. Skýrslu stjórnar
2. Ársreikning liðins ár
3. Fjárhagsáætlun
4. Tillögur til lagabreytinga
5. Tillögur til ályktana
6. Tillögur um stjórnarkjör
7. Önnur mál sem borist hafa
Allir félagsmenn F.U.L. eiga rétt á að sitja aðalfund með málfrelsi, tillögurétti og atkvæðisrétti. Formaður eða staðgengill hans setur fund og tilnefnir fundarstjóra og fundarritara.
Dagskrá aðalfundar:
1. Skýrsla stjórnar
2. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins og yfirlit yfir stöðu sjóða í vörslu hans.
3. Gjaldkeri leggur fram fjárhagsáætlun næsta árs.
4. Ákvörðun félagsgjalds fyrir næsta ár.
5. Kosning stjórnar og meðstjórnar samkvæmt 15. grein.
6. Kosning endurskoðanda og varamanns hans úr hópi félagsmanna til eins árs í senn.
7. Lagabreytingar.
8. Önnur mál.
Ályktanatillögur um málefni, sem eru á dagskrá fundarins, mega koma fram á fundinum sjálfum. Aðrar tillögur til ályktana, sem ekki hafa verið kynntar skv. 4. tl. 11. gr., skal bera fram, þegar áður innsendar tillögur eru lagðar fram.
Skýrslu stjórnar og niðurstöður aðalfundar skal birta svo skjótt sem auðið er.

11. grein
Aukaaðalfundur.
Stjórn félagsins eða félagsmenn geta kvatt til aukaaðalfundar ef þeir telja brýna nauðsyn bera til og skal þá boðun vera samkvæmt 14. gr. laga þessa.

12. grein
Félagsfundir.
Stjórn félagsins skal boða til almennra félagsfunda svo oft sem efni standa til, eða a.m.k. 1/4 gjaldskyldra félaga, eða 1/3 á vinnustað, krefjist þess sbr. grein 18, en þó eigi sjaldnar en tvisvar á vetri. Félagsfundi skal boða, með a.m.k. 1 viku fyrirvara, eftir hentugleika skriflega eða með auglýsingum. Í fundarboði skal getið dagskrár. Fundurinn er ályktunarhæfur um tilkynnt dagsskráratriði, ef hann er löglega boðaður og 1/4 gjaldskyldra félagsmanna er viðstaddur. Nú reynist fundur ekki ályktunarfær, og má þá boða til aukafundar um sömu mál. Þann fund má eigi halda fyrr en að viku liðinni, nema sérstaklega standi á og er hann ætíð ályktunarfær, en geta skal þess í fundarboði, að ákvörðun verði tekin um dagskráratriði fundarins. Afl atkvæða ræður alla jafnan úrslitum mála á fundum félagsins. Við allar meiriháttar stefnumarkandi ákvarðanatökur og lagabreytingar þurfa 2/3 fundarmanna að samþykkja. Halda skal fundargerðarbók.

V. Kafli: Stjórn félagsins, skipan og verksvið

13. grein
Stjórn.
Stjórn félagsins skipa 9 félagsmenn, formaður, ritari sem jafnframt er varaformaður, gjaldkeri og 6 meðstjórnendur, þar af tveir úr hópi 5. og 6. árs læknanema. Þeir skulu kosnir á aðalfundi úr hópi félagsmanna til eins árs í senn. Fulltrúar læknanema í stjórn F.U.L. eru valdir af stjórn Félags Læknanema og hafa þeir atkvæðisrétt á stjórnarfundum F.U.L.
Kjósa skal formann sérstaklega, síðan ritara og gjaldkera. Afl atkvæða ræður kosningu en hlutkesti ef atkvæði eru jöfn. Séu fleiri en 2 í framboði skal kjósa aftur milli þeirra tveggja sem flest atkvæði hlutu. Meðstjórnendur og þrír varamenn stjórnar eru kosnir í einu lagi. Ef einhver fundarmanna óskar þess skulu kosningar vera skriflegar. Forfallist maður úr stjórn félagsins, tilnefnir stjórn og meðstjórn mann í hans stað úr sínum hópi. Tillögur um stjórnarmann þurfa ekki að berast fyrir aðalfund.

14. grein
Verksvið stjórnar.
Stjórn félagsins fer með málefni þess milli aðalfunda. Stjórnin er ábyrg gagnvart aðalfundi. Verksvið stjórnar er að vera á verði og fylgjast með öllu er varðar hag allra íslenskra lækna búsettra á Íslandi eða annarsstaðar. Stjórn F.U.L. skal þó einkum bera hag félagsmanna sinna fyrir brjósti og ber þá hæst kjaramál, atvinnumál og kennslumál.

Stjórn hefur yfirumsjón með samskiptum félagsins við sambærileg félög erlendis sbr. grein 19.
Stjórn ber ábyrgð á að halda samskiptum við formann Félags læknanema og boða hann á stjórnarfundi ef þess gerist þörf.
Stjórn ber að stuðla að auknum samskiptum milli lækna á mismunandi vinnustöðum m.a. með því að standa að félagsstarfi og félagslífi meðal lækna.
Ritari skal skrá fundargerð allra stjórnarfunda í gerðabók félagsins. Dagskrá funda skal aðgengileg félagsmönnum á heimasíðu félagsins. Þá hafa félagsmenn aðgang að fundargerðum stjórnarfunda og geta óskað eftir því við stjórn félagsins að fá að skoða þær.

Stjórnin kýs eftirtaldar fastanefndir til eins árs í senn og skulu nefndirnar vera fullskipaðar innan 1 mánaðar frá aðalfundi. Fastanefndir skulu skipaðar félagsmönnum og skulu nefndarformenn sitja stjórnarfundi að beiðni stjórnar þegar viðeigandi málefni nefnda eru til umræðu í stjórn. Stefna ber að því að nefndarformenn hafi starfað með nefndinni árið á undan sem meðstjórnendur. Stjórnin markar starfsvið fastanefnda á hverjum tíma og skal að minnsta kosti einn stjórnarmeðlimur taka sæti í hverri þeirra. Stjórnin getur skipað aðrar nefndir og/eða hvatt félagsmenn til nefndarstarfa, eftir því sem þurfa þykir. Allar fastanefndir skulu skila skýrslu um störf sín til stjórnarinnar, eigi síðar en 2 vikum fyrir aðalfund.

 

15. grein

Fastanefndir Félags unglækna.

1. Samninganefnd:

Nefndina skipa a.m.k 4 læknar úr F.U.L. og eiga tveir þeirra sæti í samninganefnd Læknafélags Íslands. Stjórn tilnefnir fulltrúa í nefndina. Samninganefnd skal halda utan um kjarasamninga félagsmanna, annast kjararannsóknir og undirbúa gerð kjarasamninga. Nefndarmenn sjá um samningsgerð F.U.L. við ríki og aðrar stofnanir þegar við á. Nefndin skal halda reglubundna fræðslufundi, fyrir lækna og læknanema, um kjaramál og tengd efni.
2. Kennslu- og fræðslunefnd:

Nefndina skipa a.m.k. 3 læknar úr F.U.L. og tilnefnir stjórn fulltrúa í nefndina. Hún skal vinna að aukinni fræðslustarfsemi og endur- og símenntun félagsmanna. Nefndarmenn eru fulltrúar F.U.L. í undirbúningsnefnd Læknadaga. Einn nefndarmanna situr í Fræðslustofnun lækna. Þá skal nefndin hafa yfirumsjón með fræðslu á heimasíðu félagsins og skal vinna að auknum umsvifum hennar og hvetja til notkunar meðal félagsmanna. Nefndin skal halda fræðslufundi um ýmis sérmálefni sem tengjast læknum.
3. Hagsmuna- og réttindanefnd:

Nefndin skal skipuð amk. 3 félagsmönnum. Tilgangur nefndarinnar er að vinna að því að réttindi og kjarasamningar félagsmanna séu virt af einstökum vinnuveitendum. Einnig skal hún vinna að úrbótum á starfsskilyrðum á stærstu vinnustöðum félagsmanna, til að auka starfsánægju og tryggja að læknar geti nýtt menntun sína að fullu í þágu sjúklinga.

Þá skal nefndin vinna sérstaklega að málum kandidata og skal einn nefndarmanna vera sérlegur fulltrúi þeirra. Nefndin skal standa vörð um að kandidatar hljóti tilskilda menntun og þjálfun á kandidatsári. Einnig skal unnið að því að starfsumhverfi kandidata sé þannig að þeir hafi möguleika á að sinna þessum þætti, t.d. þarf að huga að vinnuálagi og starfsaðlögun.

Nefndin skal stuðla að því að starfandi séu trúnaðarmenn úr röðum félagsmanna FUL á helstu vinnustöðum þeirra. Trúnaðarmenn skulu skipaðir í samræmi við 28. grein laga um kjarasamning opinberra starfsmanna (nr.94/1986) og skulu trúnaðarmenn taka sæti í nefndinni. Félagsmenn geta ýmist leitað til trúaðarmanna sinna eða beint til nefndarinnar með réttindamál er varða vinnustað þeirra.

4. Skemmtinefnd:

Nefndina skipa a.m.k. 3 læknar úr hópi félagsmanna og tilnefnir stjórn fulltrúa í nefndina. Nefndin skal sjá um undirbúning Unglæknadags í samvinnu við kennslu- og fræðslunefnd. Nefndin skal leitast við að halda uppi félagslífi félagsmanna og efla samstöðu innan hópsins.

5. Upplýsinga- og kynningarnefnd:

Nefndina skipa amk. 3 fulltrúar úr hópi lækna sem stjórn FUL tilnefnir, auk 1 fulltrúa úr hópi læknanema sem stjórn Félags læknanema tilnefnir.

Tilgangur nefndarinnar er annars vegar að stuðla að aukinni meðvitund og þekkingu félagsmann FUL varðandi réttinda- og kjaramál þeirra (sbr. 2. grein, 3. liður). Hins vegar skal nefndin vinna að því að efla starf innra starf FUL, m.a. með því að auka meðvitund félagsmanna um tilvist þess og tilgang, og stuðla að aukinni þáttöku í störfum félagsins og umræðum. Nefndin skal huga að sérstökum aðgerðum í þessum tilgangi. Að auki skal nefndin sjá um að auglýsa viðburði félagsins á áberandi hátt.

Nefndin ber ábyrgð á því að félagaskrá sé rétt uppfærð á hverjum tíma.

Nefndin skal á hverju ári sjá um að kandidatar í læknisfræði frá Háskóla Íslands, svo og íslenskir eða erlendir ríkisborgarar, sem tekið hafa kandidatspróf erlendis, en fá læknaréttindi á Íslandi, fái lög F.U.L., kjarasamninga sjúkrahúslækna og siðareglur lækna (Codex eticus), svo að þeim sé ljós tilvera félagsins, tilgangur þess og reglur, og réttindi þeirra og skyldur sem lækna.

Nefndin ber ábyrgð á heimasíðu félagsins og samskiptum við vefstjóra og skal veita félagsmönnum tæknilega aðstoð eftir föngum. Skal einn nefndarmanna hafa þetta hlutverk sérstaklega á sinni könnu.

 

16. grein
Stjórnarfundir.
Stjórnarfundir skulu haldnir á a.m.k. 2 mánaða fresti. Fundir skulu boðaðir með dagskrá og með sem lengstum fyrirvara og þá jafnan á síðasta stjórnarfundi. Fundir stjórnar eru ákvörðunar og ályktunarhæfir ef 5 stjórnarmenn sækja fund og hann boðaður með minnst 2 daga fyrirvara.

17. grein
Eigi félagið í deilum um laun félagsmanna eða önnur kjör, getur félagsfundur kjörið sérstaka nefnd eða nefndir til þess að koma fram af félagsins hálfu í deilunni eða falið stjórn F.U.L. það hlutverk.
Á fundir þar sem rætt er um mál, sem grein þessi fjallar um, eru þeir einir atkvæðisbærir sem eiga beina aðild að viðkomandi deilu. Slík allsherjaratkvæðagreiðsla má fara fram með tvennum hætti:

1. Tillaga sú, sem taka á ákvörðun um, skal send öllum atkvæðisbærum félagsmönnum ásamt ásamt atkvæðaseðli, er rita ber á já eða nei, leggja í umslag, loka því og leggja það í annað umslag, er beri með sér frá hverjum atkvæðið er. Bréfið skal síðan sent til stjórnar (kjörstjórnar) innan frests, er hún hefur ákveðið fyrirfram.
Áður en atkvæði eru talin, skal setja öll minni umslögin í kassa, blanda þeim síðan saman og telja.
2. Stjórn (kjörstjórn) tilkynnir félagsmönnum, hvar allsherjaratkvæðagreiðsla skuli fara fram og á hvaða tíma hún standi yfir.
Atkvæðisbærir félagsmenn mæta þar og greiða atkvæði með því að skrifa já eða nei á atkvæðaseðilin, er síðan skal látinn í lokaðan kassa.

Atkvæðagreiðslan samkvæmt þessum lið má ekki standa skemur en 2 daga, 12 klst. hvorn dag.

18. grein
Vantraust.
Óski félagsmaður að bera fram vantraust á stjórn eða einstaka embættismann, skal það gert skriflega og undirritað af a.m.k. fjórðungi gjaldskyldra félaga. Stjórninni er skylt að taka vantraust fyrir á félagsfundi innan þriggja vikna og skal boða fundinn skv. 14. grein um félagsfundi.

VI. Kafli: Ýmis ákvæði

19. grein
Erlend samskipti.
Félagið er aðili að Nordisk rad for yngre legere (NRYL) og tekur virkan þátt í starfsemi þess. Þannig hefur félagið bein samskipti við önnur félög ungra lækna á Norðurlöndum. Erlend samskipti skulu vera á hendi formanns félagsins nema annað sé ákveðið á aðalfundi. Formaður sækir því árlega aðalfundi NRYL. Formaður ber ábyrgð á að varðveita öll skjöl sem tengjast samskiptum þessum og koma upplýsingum, sem þannig berast, til félagsmanna með reglulegum skýrslu- og greinarskrifum í Læknablaðið eða á heimasíðu félagsins.

20. grein
Lagabreytingar.
Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi, enda hafi breytingartillögum verið dreift 1 viku fyrir fund. Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist stjórn félagsins a.m.k. 10 dögum fyrir aðalfund. Lagabreytingar eru lögmætar, ef aðalfundur er lögmætur og a.m.k. 2/3 fundarmanna greiða þeim atkvæði.

21. grein
Brottvísun.
Stjórn FUL getur vísað félagsmanni úr félaginu fyrir alvarlega vanrækslu skyldustarfa, velsæmisbrot, brot á siðareglum lækna eða fyrir ítrekuð minni brot. Úrskurði stjórnarinnar um brottvikningu skal taka fyrir á næsta reglulega fundi félagsins til staðfestingar eða synjunar.