
Kjarasamningar
Kjarasamningar
KJARASAMNINGUR-BEST OF
Með þessu plaggi vill stjórn FUL gera aðgengileg þau atriði úr kjarasamningum sem okkur finnst sérlega mikilvæg fyrir almenna lækna og kandidata. Það má líta á þetta plagg sem eins konar ”crash course” í kjarasamningnum.
Við vekjum athygli á því að ýmislegt sem er að finna í kjarasamningnum kemur ekki fram í þessu skjali, td. kafli um veikindaréttindi. Við hvetjum fólk að sjálf sögðu til að skoða kjarasamninginn í heild sinni. Hann er að finna á heimasíðu Læknafélags Íslands, lis.is. Hann er aðeins 28 síðna langur, auk bókana og er að sjálfsögðu prýðisskemmtun aflestrar...
____________________________________________________________
Um kjarasamninginn
Núgildandi kjarasamningur var gerður 1. okt 2008 og gildir formlega til 31. mars 2009. Vegna efnahagskreppunnar mun samningurinn að öllum líkindum verða framlengdur nokkuð.
Samningsaðilar kjarasamningsins eru: Fjármálaráðherra f. h. ríkissjóðs og Læknafélag Íslands (að undanskildu Skurðlæknafélagi Íslands) annars vegar og St. Franciskusspítali hins vegar.

